|
Húsnæði
Skólasafn Engjaskóla er í björtu og rúmgóðu húsnæði á annarri hæð skólans.
Safnkostur
Á safninu er að finna skáldsögur, fræðibækur, uppsláttarrit og handbækur auk hljóðbóka, geisladiska, spila , myndbanda og tímarita. Upplýsingar um öll skráð gögn er að finna í Gegni sem er rafrænt alhliða bókasafnskerfi. Safnið hefur aðgang að Skólasafnamiðstöð Reykjavíkur.
Starfsemi skólasafnsins Skólasafninu er meðal annars ætlað það hlutverk að styðja sem best við það sem fer fram í skólanum og aðstoða nemendur og starfsfólk við öflun hverskonar efnis.
Markmið safnsins eru m.a.: • að leiðbeina nemendur við að nota safnið við nám og til skemmtunar • að safnkosturinn hafi fræðslu og uppeldislegt gildi og sé aðgengilegur öllum nemendum og starfsfólki skólans • að hjálpa nemendum við að verða sjálfbjarga við að afla heimilda við skólatengd verkefni og finna þau gögn sem
tilheyra safninu • að örva áhuga nemenda á bókum og lestri • að þjálfa hlustun og eftirtekt með sögustundum
Safnið er opið daglega frá 8.10 til 14.10.
Umsjón með safninu hefur Kristín Lára Ragnarsdóttir bókasafns- og upplýsingafræðingur.
|