|
þriðjudagur, 09 desember 2008 21:09 |
|
Stoð og stuðningskerfi Engjaskóla
Í Engjaskóla eru u.þ.b.320 börn í 16 bekkjardeildum.
Stoðkennsla á yngsta stigi. Stoðkennsla á yngsta stigi fer að mestu fram inni í bekk og er að mestu leiti um lestrarkennslu að ræða auk stærðfræðihjálpar. Einnig fer fram kennsla og þjálfun barna með hegðunarraskanir og einnig er álagi létt af börnum með athyglisbrest/ofvirkni með því að gefa þeim rými til leiks og hreyfingar. Þessari aðstoð sinna stuðningfulltrúi og kennari
Ásgarður er stoðver á yngsta stigi. Kennari og stuðningsfulltrúar eru með litla hópa í lestri og stærðfræði. Stuðningsfulltrúar aðstoða líka inni í bekkjum undir stjórn umsjónarkennara . Sérstakt úrræði er fyrir nokkra nemendur sem þurfa aðlagað námsefni og sjálfsstyrkingu í litlum hóp. Stuðningsfulltrúi vinnur með hópinn undir stjórn kennara. Lögð er áhersla á að fylgjast vel með námsárangri nemenda á yngsta stigi og lögð fyrir stöðluð próf í læsi og stærðfræði til að hægt sé að aðstoða þá nemendur sem þurfa á því að halda.
Stoðkennsla á miðstigi: Fer að mestu fram í litlum hópum í stoðverinu Valhöll og í námskeiðsformi.
Í Valhöll fer aðallega fram stoðkennsla í íslensku og stærðfræði. Þeir nemendur sem eru mest í Valhöll fá einnig aðlagað námsefni í samfélagsfræði. Nemendur fá námsefni við hæfi og leitast er við að auka skilning þeirra og áhuga og jafnframt byggja upp sjálfstraust og trú á eigin getu. Áhersla er lögð á að auka lestrarfærni þeirra og efla áhuga á sjálfstæðum bóklestri. Að öðru leitu fylgja þessir nemendur bekkjum sínum.
Stoðkerfi á elsta stigi
Stoðkennsla á elsta stigi er þríþætt. Hún fer fram í námskeiðsformi. Sem valgrein fyrir nemendur sem standa höllum fæti. Í Valveri þar sem nemendur fá 23 tíma á viku í bóklegur greinum og 8 tíma í verklegum.Nokkrir nemendur fylgja bekkjum sínum í ákveðnum fögum sem valin eru af nem/kenn/foreldrum á sérstökum fundi að hausti og einnig fylga nemendudr bekknum sínum í íþróttum. Nemendur í Valveri eru þáttakendur í valgreinum skólans á unglingastigi.
Einnig fer fram stoðkennsla við nýbúa. Lögð eru fyrir stöðluð próf til að greina lesblindu í 9.bekk.
Hlutfall barna sem nýtur stuðnings og sérþjónustu í Engjaskóla er frekar hátt.
Stuðningúrræðin hafa nokkra valkosti í húsakosti . Við höfum t.d.
Beiðablik lítið hóprými þar sem við vinnum með einstaklinga og mjög litla hópa.
Valhöll er venjuleg skólastofa sem við höfum hannað sérstaklega fyrir einstaklingsvinnu á miðstigi, þar eru einnig tölvur og afþreyingarmöguleikar fyrir nemendur /nemendur eru stundum inni í rýminu í frímínútum.
Ásgarður er kennslustofa sem við höfum aðalega innréttað fyrir yngstu börnin. Þar fer fram stuðningur í lestri og þar geta börn dvalið tímabundið sem eiga erfitt með að vera inni í stærri hópum.
Valver er kennslustofa sem er sérstaklega ætluð nemendum á elsta stigi og þar fer fram kennsla 14 nemenda. Í Valveri starfa alltaf kennari og stuðningsfulltrúi. Þangað sækja nemendur kennslu og stuðning. Nokkrir nemendur fylgja bekkjum sínum í ákveðnum fögum sem valin eru af nem/kenn/foreldrum á sérstökum fundi að hausti og einnig fylga nemendur bekknum sínum í íþróttum. Nemendur í Valveri eru þáttakendur í valgreinum skólans á unglingastigi. Auk þessa er alrými fyrir framan stofurnar sem við getum nýtt eftir þörfum nemenda.
Námsumhverfið í þessum stofum er aðlagandi, fjölbreytt og hvetjandi.
|
| - 23.11.2008 |
|