Engjaskóli

Grunnskóli, 1.-7. bekkur

Vallengi 14
112 Reykjavík

""

Er barnið þitt að byrja í grunnskóla?

Hér færðu gagnlegar upplýsingar um skólabyrjun. Eins og til dæmis hvað börnin þurfa að taka með sér í skólann og hvort börnin fái mat á skólatíma.

Skóladagatal Engjaskóla

Hér finnur þú skóladagatal Engjaskóla. Í skóladagatali eru skipulagsdagar skráðir ásamt öðrum mikilvægum upplýsingum fyrir foreldra og forráðamenn.

Hvað er í matinn?

Flestir grunnskólanemendur eru í mataráskrift. Skólamatur kostar það sama í öllum skólum. Ekki þarf að greiða mataráskrift fyrir fleiri en tvö börn frá sama heimili. Hér getur þú fylgst með því hvað er á boðstólnum í mötuneyti Engjaskóla.

Um Engjaskóla

Engjaskóli er grunnskóli í norðanverðum Grafarvogi og er fyrir nemendur í 1. -7. bekk. Skóla- og frístundaráð Reykjavíkur samþykkti  breytingar á skólastarfi í Grafarvoginum sem tóku gildi 2020-2021. Breytingin var sú að Vættaskóli og Kelduskóli  sem voru heildstæðir grunnskólar með nemendur frá 1.-10. bekk yrðu að þremur aðskildum skólum. Tveir grunnskólar með nemendum í 1.-7. bekk, þ.e. Engjaskóli og Borgaskóli og Víkurskóli yrði safnskóli með nemendur í 8.-10. bekk.
Hlutverk Engjaskóla er að bjóða upp á fjölbreytt og skapandi nám, stuðla að alhliða þroska allra nemenda, að mennta ábyrga og hæfa þjóðfélagsþegna með það að markmiði að þeir verði sjálfstæðir og skapandi einstaklingar sem geta tekið virkan þátt í þróun samfélagsins og stundað frekara nám. Áhersla er á fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám og teymisvinnu starfsfólks. Skólinn leggur einnig áherslu á heilsueflingu, umhverfismennt og nýsköpun. Við fylgjum uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar.  Engjaskóli fylgir menntastefnu Reykjavíkurborgar „Látum draumana rætast“. Helstu áhersluþættir menntastefnunnar eru félagsfærni, sjálfsefling, læsi, sköpun og heilbrigði. 

Frístundaheimilið Brosbær er starfrækt í Engjaskóla og félagsmiðstöðinni Vígyn býður upp á fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir nemendur á miðstigi.

 

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Tengiliður Engjaskóla er: Olga Hrönn Olgeirsdóttir

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​
 

Skólastarfsemi

Kennsluáætlanir

Hér má finna kennsluáætlanir fyrir alla bekki ásamt upplýsingum um mat á stöðu nemenda.

Skólanámskrá

Viltu vita meira um hugmyndafræði og daglegt starf Engjaskóla? Í skólanámskrá finnur þú ítarlegar upplýsingar um hugmyndafræðilegar áherslur og stefnu skólans í námi og starfi. 

Starfsáætlun

Hvað er framundan í Engjaskóla? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars stefnu skólans fyrir síðasta ár, skipulag kennslu og ótalmargt fleira. 

Skólaráð

Við grunnskóla skal starfa skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans.

Fulltrúar í skólaráði 2022-2023

Skólastjóri

Álfheiður Einarsdóttir 

Fulltrúar starfsmanna

Berglind Waage umsjónarkennari

Gunnar Bessi Þórisson umsjónarkennari

Fanný Friðriksdóttir stuðningsfulltrúi  

varafulltrúar

María Védís Ólafsdóttir

Þórhildur Ýr Olgeirsdóttir

Fulltrúi úr grenndarsamfélaginu

Málfríður Sigurhansdóttir íþrótta- og félagsmálastjóri Fjölnis

Fulltrúar foreldra

Birta Baldursdóttir

Þórey Rán Brynjarsdóttir

Varafulltrúi:  Aníka Lind Björnsdóttir

 

5. bekkur Agnea Snærós D. Ragnarsdóttir fulltrúi og Benedikt Sævarsson er varafulltrúi

6. bekkur: Hákon Jensson er fulltrúi og Benóný Ingi Þorsteinsson er varafulltrúi

7. bekkur: Snædís Freyja Davíðsdóttir fulltrúi og Ynja Arnarsdóttir er varafulltrúi

Undanþága frá skólasókn

Hér má nálgast eyðublað til að sækja um tímabundna undanþágu frá skólasókn. 

Skólahverfi Engjaskóla

Í Reykjavík eru mörg skólahverfi og barnið þitt hefur forgang í sinn hverfisskóla. Engjaskóli er hverfisskóli fyrir íbúa í eftirtöldum götum: Bakkastöðum, Barðastöðum, Brúnastöðum, Fróðengi, Garðsstöðum, Gullengi, Laufengi, Reyrengi, Starengi og Vallengi.